Fjarðarhlaupið verður haldið laugardaginn 6.ágúst kl 11:00 á Ólafsfirði.
Hlaupið er ræst í miðbæ Ólafsfjarðar og hlaupið sem leið liggur upp gamla Múlaveginn að Bríkargili. Þar er snúið við, hlaupið til baka og inn Brimnesdal að vatnsbóli Ólafsfjarðar. Þar er farið yfir á sem er brúuð og upp á efsta hjalla Tindaaxlar þar sem er frábært útsýni yfir Ólafsfjörð. Hlaupið er í suður á efsta hrygg að skíðalyftunni og þar hefst lækkun á skíðasvæðinu. Þegar komið er framhjá skíðaskálanum er hlaupið niður Túngötu, undir stökkpallinn og að Tjarnarborg, en þar eru komnir 10km. Í 20km hlaupinu er haldið áfram frá Tjarnarborg í suður, gegnum tjaldsvæðið, skólalóð og hlaupið með knattspyrnuvelli KF að Hornbrekku. Þar hefst hækkun upp að snjóflóðavarnargarði og þar efst tekinn slóði í hlíðum fjallsins suður að Burstabrekkudal. Komið niður við Tröllakot og hlaupið í suður fyrir neðan Hlíð inn í vegslóða í Bárubraut. Þá er haldið niður að Ólafsfjarðarvatni og hlaupið þar með því á malbiki inn í bæinn og endar hlaupið eftir Bylgjubyggð, Ægisbyggð og Aðalgötu að Tjarnarborg.
Relive video af 10km hlaupinu
Relive video af seinni 10km
Skráning hjá netskráningu.....
Vegalengdir í Fjarðarhlaupinu:
3,5km/7km, skemmtiflokkur fyrir alla, þátttakandi ræður vegalengd, 2.000 kr.
10 km, karlar og konur, 4.000 kr. hækkar í 6.000 kr. 2.ágúst
20km, karlar og konur 17 ára og eldri, 6.000 kr. hækkar í 8.000 kr. 2.ágúst.
Fjarðarhjól 21km og hlaup 20km 17 ára og eldri, 9.000 kr. hækkar í 12.000 kr. 2.ágúst.
Eins og venja er með Fjarðargönguna þá verður fyrst og fremst hrikalega gaman hjá okkur í Fjarðarhlaupinu! Flott umgjörð, tónlist, drykkjarstöðvar verða tvær í brautinni, veitingar eftir keppni, allir fá þátttökuverðlaun en fyrst og fremst höfum við gaman!
Drög að dagskrá fyrir laugardaginn 6.ágúst:
8-10:30 Afhending keppnisgagna (staðsetning nánar auglýst síðar)
11:00 Fjarðarhlaupið 20km
11:05 Fjarðarhlaupið 10km og 3,5/7km