Nú hefur Skíðafélag Ólafsfjarðar troðið skíðagöngubraut á Skeggjabrekkudal sem hefst við golfskála Golfklúbbs Fjallabyggðar. Brautin liggur inn Skeggjabrekkudal að Hólum.
Búið er að moka upp að skálanum svo þangað er greiðfært á bílum.
Við minnum á brautargjöld fyrir þá sem ekki eiga árskort, millfæra inn á SÓ, kt 591001-2720, reikn 347-03-400665
Brautargjald er 1.000 kr.