Það var flottur dagur hér á Ólafsfirði í dag.
"Flipp" mót á svigskíðum vakti mikla lukku, en fyrri ferðin var farin afturábak og seinni ferðin á öðru skíði. Mikil stemming var meðal þátttakenda og gaman að fylgjast með.
Fjöldi fólks lagði leið sína upp á Skeggjabrekkudal en þar var troðin 7,5km hringur með smá útúrdúr innfyrir Hóla fyrir þá sem vildu og var þá hringurinn í heild um 10km langur. Veðrið lék við okkur, 10°hiti, logn og skýjað.
Síðast en ekki síst lét fólk sig ekki vanta í skíðaskálann okkar þar sem við buðum upp á kaffihúsa stemmingu. Eðal kaffi úr nýju vélinni okkar, kökur og kruðerí sem gestir nutu vel.
Flottur dagur og við stefnum á flottan dag á morgun samkvæmt Páskadagskránni.